top of page

Auðvelt að plata!

Hvað veistu um sykur og hveiti? Er til hollur sykur? Er lífrænt ræktaður matur hollari en annar? Er spelt betra en venjulegt hveiti?

Því miður er ekki allt rétt sem haldið er fram um hollustu vissra matvæla, svo sem sykurs og hveitikorns, og ýmislegt ekki eins óhollt og haldið er fram.

 

Hrásykur er alveg sami sykurinn en hefur ekki farið í gegnum síðasta vinnsluferli sykurs, sem telst mikið unnin vara. Því verður eftir dökkt síróp sem kallast melassi og er stundum bætt við hvítan sykur svo úr verður hrásykur, og þannig er púðursykur búinn til, melassi inniheldur örlítið af bætiefnum sem þó hafi engin teljandi áhrif á næringargildið.

 

Hrásykur meltist og nýtist líkamanum nákvæmlega eins og hvítur sykur og ótrúlegt að fólk komist upp með að halda því fram að hann sé hollari, en því miður er auðvelt að plata neytendur á fölskum forsendum, agave-síróp er í engu skárri lausn.

 

Agave-síróp er mikið unnin vara úr agave-plöntu. Það samanstendur aðallega af ávaxta- og þrúgusykri, en í þær sykrur brotnar einmitt hvítur sykur í líkamanum. Agave-síróp hækkar blóðsykur hægar, en á endanum virkar það á sama hátt fyrir líkamann. Því er alls ekki hollara að neyta agave-síróps eða hrásykurs, og sé verið að hugsa um hollari sykur en hvítan sykur, þá er hann ekki til.

 

Munurinn á venjulegu hveiti og spelti er nánast enginn sé litið er á næringarinnihald. Spelt er hægþroska, aðeins hægt að nýta um 60% korns þess og þar af leiðandi er það allt að helmingi dýrara en venjulegt hveitikorn. Næringarinnihald og hollusta er hins vegar sú sama, hvort sem kornin eru lífrænt ræktuð eður ei, því álíka mikið glúten er í báðum korntegundum og í sumum mælingum er meira glúten í spelthveiti.

 

Korn er ýmist malað í fínt eða gróft mjöl, en líka malað í heilkorn sem er næringarríkast. Við mölun missir fínna korn meira af vítamínum og steinefnum, en brauð sem er bakað úr heilkorni, sykurlaust og með ferskum, góðum súr er afar næringar- og trefjaríkt og einhver hollasta kornvara sem völ er á, en flest þurfum við að bæta við grófu korni og heilkorni í fæðu okkar, eini munurinn á venjulegu hveiti og spelti er sá að spelt sé helmingi dýrara.

 

Því er neytendum sagt ósatt þegar þeim er talin trú um að brauð þeirra verði hollara úr spelti. Þá hafa margar rannsóknir sýnt að lífrænt ræktaður matur er ekki hollari þegar litið er eingöngu á næringarinnihald.

Staðreyndir um spelt, hveiti og heilkorn

Í næringartöflu Íslenska gagnagrunnsins um efnainnihald matvæla (ÍSGEM) má sjá mismunandi næringarinnihald venjulegs hveitikorns og speltikorns.

orka            prótín        fita        kolvetni        trefjar

Hvítt hveiti

333 kcal     12,5 g       1 g        66.7 g         3,7 g

Hvítt spelti

355 kcal     10,6 g       0,5 g     76,1 g         1,9 g

Hveiti heilkorn

325 kcal     11,1 g       2 g         57,3 g        16,9 g

Spelti heilkorn

337 kcal     10,8 g       2,7 g      63,2 g         8,8 g

EAViðtöl
MeiraEfni
HafaSamband

Eafitness.is Stofnað  2013

Skemmtileg viðtöl við skemmtilegt fólk...

 

 

Allt eða Ekkert

 

Allt eða Ekkert eru fræðandi þættir þar sem við fylgjumst með Antoni undirbúa sig fyrir mót.

eafitness, fjarþjálfun, fitness, einkaþjálfun

Verðskrá

Hvað kostar Einkaþjálfun/Fjarþjálfun

hjá EAFitness.is

Smelltu á myndina til að skoða.

Iceland Reykjavík

Elma  GSM: 869 - 2595  

Anton GSM: 845 - 4205
 

  • w-facebook
eafitness, fjarþjálfun, fitness, einkaþjálfun
eafitness, fjarþjálfun, fitness, einkaþjálfun
eafitness, fjarþjálfun, fitness, einkaþjálfun
eafitness, fjarþjálfun, fitness, einkaþjálfun
eafitness, fjarþjálfun, fitness, einkaþjálfun
eafitness, fjarþjálfun, fitness, einkaþjálfun
bottom of page